Þrífa Blackstone pönnu eftir notkun

 

  1. Gott að hita Blackstone pönnugrillið um 15 min fyrir notkun.
  1. Þegar búið er að elda og slökkva á pönnunni og láta pönnuna kólna svolítið (þarf að vera heit en ekki of) er best að hella eða sprauta rólega úr brúsa smá vatni yfir og láta krauma í nokkrar sekúndur til að losa matarleifar og skafa svona matarleifarnar og vatnið í gatið sem er fyrir miðju þar sem það fer í litla skúffu fyrir aftan pönnuna. Passa að skafa ekki húðina sem myndast hefur á pönnunni.
  1. Strjúka svo með pappírsþurrku vel yfir allan flötinn, gott að halda pappírsþurrkunni með grilltöng ef að pannan er heit.
  1. Gott að setja síðan nokkra dropa af vatni á bletti sem ekki hafa farið og nudda yfir með Blackstone hreinsisvampi eða sambærilegu og þurrka svo aftur yfir með pappírsþurrku.
  1. Þagar pannan er orðin hrein þá er gott að bera þunnt lag af matarolíu yfir til að verja flötinn og undirbúa hana fyrir næstu notkun.
  1. Muna svo að tæma skúffuna aftan á pönnunni þegar vatnið í henni er orðið kalt.